fyrirtækjalausnir
Vendum býður sérsniðnar fyrirtækjalausnir og hefur starfað náið með fjölmörgum íslenskum fyrirtækjum um árabil.
Boðið er upp á fjölda vandaðra og hagnýtra lausna sem miða að því að auka færni starfsmanna og stjórnenda innan fyrirtækja. Lausnir geta verið í formi stefnumótunar, innleiðingar og eftirfylgni, ýmiss konar vinnustofa, einstaklingsþjálfunar fyrir stjórnendur, fyrirlestra, námskeiða og lengri námslína.
Lögð er áhersla á ítarlega þarfagreiningu svo hægt sé að sérsníða lausnirnar eftir þörfum hvers fyrirtækis eða stofnunar, bæði í lengd og innihaldi. Flestar lausnir Vendum hafa að leiðarljósi aðferðafræði leiðtoga- og viðskiptaþjálfunar en þegar fræðsla og þjálfun fara saman má auka yfirfærslu þekkingarinnar umtalsvert, og þar með tryggja betri nýtingu á fjármagni og tíma sem varið er í fræðslu og þjálfun innan fyrirtækja.
Hægt er að sjá yfirlit yfir námsframboð Vendum í flokknum Námsframboð hér á síðunni.
Ef óskað er eftir ráðgjöf, fræðslu eða þjálfun á öðrum sviðum en þjálfarar Vendum hafa sérþekkingu á, er Vendum í samstarfi við fjölda sérfræðinga á ólíkum sviðum og hefur milligöngu um þjónustu þeirra. Vendum er í samstarfi við þjálfara og ráðgjafa m.a. í Bandaríkjunum, Canada, Bretlandi og Spáni.
sérsniðnar lausnir Vendum
Hér að neðan má sjá dæmi um sérsniðnar lausnir sem Vendum hefur þróað í nánu samstarfi við íslensk fyrirtæki.
Samstarf vendum og landsbankans 2016-2017
Um er að ræða samstarfsverkefni Vendum og Landsbankans sem ráðist var í vorið 2016 og stóð í eitt ár. Hér að neðan má sjá myndbönd sem sýnd voru á Mannauðsdeginum 2018, sem haldinn var á vegum Félags Mannauðsfólks á Íslandi.
Alda Sigurðardóttir segir frá verkefninu frá sjónarhóli stjórnendaþjálfans.
Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir framkvæmdastjóri Markaða hjá Landsbankanum segir frá sinni upplifun af verkefninu.